Þú hefur nokkra möguleika í sjónvarpsþjónustu.
Nota loftnet
Fyrir þá sem vilja horfa á RÚV og aðrar opnar stöðvar er kjörið að nýta sér það loftnetskerfi sem þegar er til staðar. Kostir við slíkt eru engin mánaðargjöld, allt sem þarf er nær oftast til staðar. Ókostir eru enginn aðgangur að læstum stöðvum og ekkert tímaflakk. Sjá meira á vefsíðu RÚV.
Streymisþjónustur
Sívinsælla er að nýta sér ekki línulega dagskrá heldur að styðjast við streymisþjónustur líkt og Netflix. Slík umferð telst til notkunar á Internetinu og er því kjörið að vera með ótakmarkað niðurhal ef nýta á streymi. RÚV hefur einnig gefið út forrit fyrir Apple TV4 þar sem hægt er að horfa á stöðina í háskerpu.
Sjónvarp Símans
Síminn býður sjónvarpsþjónustu um ljósleiðara og ljósnetkerfi Mílu. Um ljósleiðara er hægt að tengja myndlykilinn í aðgangstæki og/eða router. Yfir sjónvarp Símans geturðu horft á íslenskar og erlendar stöðvar, horft á efnið aftur í tímann með tímaflakki og/eða frelsi ásamt því að leigja myndir og þætti á leigunni.
Sjónvarp Vodafone
Vodafone býður upp á sjónvarpsþjónustu yfir Ljósleiðarann og yfir kerfi Mílu. Myndlykillinn er almennt tengdur beint í ljósleiðaraboxið, þegar sjónvarpsþjónustan er tekin yfir símalínu er myndlykillinn tengdur aftan í routerinn á porti 4. Yfir sjónvarp Vodafone geturðu horft á íslenskar og erlendar stöðvar, horft á efnið aftur í tímann með tímavél og/eða frelsi ásamt því að leigja myndir og þætti á leigunni.